Veitingastaðurinn Spaðinn hefur lokað eftir ríflega tveggja ára starfsemi.
Í tilkynningu frá Þórarni Ævarssyni, stofnanda og framkvæmdastjóra Spaðans, segir að rekstur fyrirtækisins hafi „af ýmsum ástæðum gengið erfiðlega undanfarið og hafa eigendur fyrirtækisins leitað allra leiða til að halda rekstrinum gangandi án árangurs“.
Þar kemur einnig fram að skuldir Spaðans séu nær einvörðungu við eigendur fyrirtækisins en þar sem rekstrargrundvöllur er brostinn er það mat eiganda að réttast sé að hætta starfsemi.
Því var síðasti starfsdagur þess í gær, sunnudaginn 3. júlí.