Smiðjan brugghús, í Vík, er fyrsta brugghúsið sem fær í hendurnar leyfi til þess að selja bjór á framleiðslustað í samræmi við breytt lög um smásölu áfengis. Fyrsti bjórinn verður seldur klukkan tólf að hádegi á morgun.
„Það er meiriháttar að geta loksins farið að selja okkar vöru og að það sé ekki lengur ólöglegt,“ segir Sveinn Sigurðsson, einn stofnenda Smiðjunnar.
Hann bendir á að meirihluti þeirra sem heimsæki brugghúsið séu erlendir ferðamenn, sem geti nú loks tekið bjór með sér heim og kynnt fyrir vinum sínum og bjóráhugamönnum í sínu heimalandi.
„Við erum með veitingastað og bar. Í augnablikinu verður smásölunni bara bætt við barinn. Við erum að stækka brugghúsið og auka framleiðslugetuna um helming. Við ætlum þá í leiðinni að útbúa sérstakt rými fyrir söluna.“
Frumvarp um smásölu bjórs af framleiðslustað var einnig lagt fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga. Sveinn viðurkennir að hafa allt eins átt von á því að örlög frumvarpsins yrðu þau sömu í þetta skipti.
Sótt var um leyfi fyrir Smiðjuna um leið og eyðublöðin birtust á netinu. „Það hitti síðan svo skemmtilega á að það var akkúrat sveitarstjórnarfundur í seinustu viku, en vanalega eru sveitarstjórnirnar í fríi á þessum tíma. Þá var þetta samþykkt.“
Sveinn er ekki viss um að því fylgi sérstakt samkeppnisforskot, þó Smiðjan hafi náð leyfinu á undan öðrum brugghúsum. Hann er þó sannfærður um að þessu skrefi fylgi mikil tækifæri, bæði tekjumöguleikar og kynningarmöguleikar.
„Við höfum verið að bjóða upp á kynningarferðir um brugghúsið þar sem fólk getur smakkað bjórinn, en svo getur það ekki keypt hann af okkur að loknum kynningum. Við höfum þurft að benda því á ríkið [ÁTVR] , en þar færðu bjórinn ekki yngri en vikugamlan.“
Bjórinn sem verður til sölu á morgun verður eins til tveggja daga gamall bjór, að sögn Sveins. „Bjór er ferskvara, hann er langbestur þegar hann er alveg nýr.“