H&M í Barcelona er sakað um að hafa þagað yfir kynferðislegri áreitni eftir að þrír starfsmenn fatarisans tilkynntu fyrirtækinu um kynferðislega áreitni í janúar, samkvæmt heimildum spænska dagblaðsins El País.
Fyrirtækið krafðist þess að konurnar þrjár skrifuðu undir trúnaðaryfirlýsingu þar sem þeim yrði meinað að tjá sig um málið. Ef þær brytu í bága við yfirlýsinguna þá yrði litið á það sem brot sem refsivert væri samkvæmt refsilöggjöf þar í landi.
Eftir að tvær þeirra skrifuðu undir plaggið fór af stað rannsókn af hálfu H&M sem var ekki í samræmi við viðurkennda verkferla samkvæmt lögum, en málið var ekki tilkynnt til viðeigandi aðila af hálfu fyrirtækisins. Sú sem skrifaði ekki undir yfirlýsinguna vakti athygli á málinu.
Á Spáni starfrækir H&M fleiri en 140 verslanir, en fyrirtækið hefur neitað að tjá sig um málið.