Félagið Gavia Invest hefur bætt við sig þremur milljónum hluta í Sýn og fer nú með 16,08% hlut í fyrirtækinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Fyrr í morgun var greint frá fjárfestingu félagsins á 14,95% hlut í Sýn, sem meðal annars á og rekur vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Gavia er þar með orðið stærsti hluthafi Sýnar.
Nú hefur félagið bætt við sig sem nemur rúmri prósentu í viðbót.