Félagið Gavia Invest hefur keypt 15% í Sýn. Heiðar Guðjónsson tilkynnti samstarfsmönnum sínum að hann myndi hætta sem forstjóri Sýnar og hefur fjárfestingarfélag hans, Úrsus ehf., selt allan eignarhlut sinn í Sýn.
Fram kemur í tilkynningu til Kauphallar að Gavia Invest ehf. (áður AB 890 ehf) sé fjárfestingafélag í eigu Info Capital ehf (Reynis Grétarssonar og Hákons Stefánssonar), E&S 101 ehf (Jonathan R. Rubini, Andra Gunnarssonar og Mark Kroloff) og Pordoi ehf (áður AB 891 ehf.) (Jóns Skaftasonar). Jón Skaftason er fyrirvarsmaður félagsins.
Gavia Invest ehf. fer nú með atkvæðisrétt fyrir 40.147.128 hluti í Sýn hf. eða sem nemur um 14,95% hlutafjár, að því er fram kemur í tilkynningunni.