Heiðar Guðjónsson mun starfa tímabundið sem forstjóri Sýnar þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Hann hefur sem kunnugt er látið af störfum forstjóra og selt hlut sinn í fyrirtækinu.
Í tilkynningu sem Heiðar sendi samstarfsfólki sínu í gærmorgun greindi hann frá því að hann hafi orðið fyrir heilsubresti fyrr á þessu ári og að í kjölfarið hafi honum verið ráðlagt að minnka við sig vinnu.
Formleg uppsögn
„Stjórn félagsins hefur nú borist formleg uppsögn forstjóra á ráðningasamning sínum.
Forstjóri mun áfram sinna starfsskyldum sínum á samningsbundnum uppsagnarfresti þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn,“ segir í tilkynningu frá Sýn.
Hópur fjárfesta keypti hlut Heiðars í Sýn en fjallað var um þá á mbl.is í gær.