Englandsbanki hækkaði stýrivexti um 0,5% í dag, en þetta er mesta stýrivaxtahækkun bankans í aldarfjórðung. Stýrivextir í Bretlandi standa nú í 1,75%.
Bankinn fylgir í fótspor bandaríska seðlabankans sem hækkaði stýrivexti í síðustu viku en í vikunni þar áður hækkaði evrópski seðlabankinn vexti.
Fram kemur í greinargerð Englandsbanka að peningastefnunefnd bankans hafi samþykkt hækkunina með 8 atkvæðum gegn 1.
Sá sem greiddi atkvæði gegn meirihlutanum vildi hækka vextina um 0,25 prósentur.
Versnandi horfur
Bandaríski seðlabankinn hækkaði vexti í síðustu viku um 0,75 prósentur. Það er fjórða vaxtahækkun bankans í ár og eru vextir nú 2,25%.
Verðbólga hefur verið á uppleið í Bandaríkjunum og hafa væntingar um efnahagshorfur daprast, að minnsta kosti út þetta ár og næsta.
Í vikunni áður, fimmtudaginn 21. júlí, hækkaði evrópski seðlabankinn vexti um 0,5%. Það var fyrsta vaxtahækkun bankans í 11 ár.