Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur hafa einróma staðfest samþykki stjórnar OR-eigna fyrir heimild til að stofna hlutafélag um rekstur Carbfix, sem er dótturfélag OR.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Tilgangurinn er að gera Carbfix mögulegt að beita tækni sinni í innlendum og alþjóðlegum verkefnum sem stuðla að því að minnka losun koltvísýrings út í andrúmsloftið og styðja þannig við loftslagsmarkmið Íslands og heimsins.
„Carbfix vinnur að nokkrum viðamiklum verkefnum til að nýta tækni sína og þróa hana frekar, og fleiri verkefni eru í burðarliðnum. Ekki er talið raunhæft eða skynsamlegt að fjármagna vöxt verkefna Carbfix úr sjóðum Orkuveitu Reykjavíkur eða eigenda hennar, enda um áhættufjárfestingar að ræða,“ segir í tilkynningunni.
„Því er gert ráð fyrir að fá virðisaukandi fjárfesta að félaginu, en gengið er út frá því að það verði áfram í meirihlutaeigu Orkuveitu Reykjavíkur. Þá verða hugverk Carbfix áfram alfarið í eigu Orkuveitunnar og þeirra sem komið hafa að þróun einstakra verkefna.“
Carbfix byrjaði árið 2007 að þróa aðferð til að binda koltvísýring í jarðlögum neðanjarðar. Fyrirtækið hefur beitt henni samfleytt frá árinu 2012 til að binda koltvísýring, einkum úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar.