Harald Gunnar Halldórsson hefur verið ráðinn í starf lögfræðings á eignastýringarsviði Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) og hefur þegar hafið störf.
Í tilkynningu frá LSR kemur fram að Harald hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2009. Síðasta árið starfaði hann á viðskipta- og markaðssviði Isavia en þar áður var hann lögmaður Stefnis hf. um árabil. Þar áður starfaði hann í lögfræðiráðgjöf Arion banka.
Harald er með MA-gráðu frá lagadeild HÍ, er lögmaður með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum, auk þess að vera viðurkenndur stjórnarmaður.