Konráð ráðinn til SA

Konráð S. Guðjónsson.
Konráð S. Guðjónsson. mbl.is/Eggert

Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn tímabundið sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins (SA) í aðdraganda komandi kjarsamningsgerðar.

Mun hann jafnframt taka sæti í samninganefnd SA.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að Konráð taki til starfa 1. september. Hann sinnir í dag starfi aðalhagfræðings Stefnis hf. og mun snúa aftur þangað að loknum störfum sínum fyrir SA.

Var hjá Viðskiptaráði

Áður starfaði Konráð sem hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Þá starfaði hann í greiningardeild Arion banka, hjá Hagfræðistofnun og við þróunarsamvinnu í Úganda og Tansaníu.

Hann hefur einnig sinnt kennslu við Háskóla Íslands og Endurmenntun Háskóla Íslands. Konráð er með meistaragráðu í hagfræði frá Warwick-háskóla í Bretlandi og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands.

Haft er eftir Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra SA, að mikill styrkur sé fólginn í því að fá Konráð til liðs við samtökin enda sé umfangsmikið verkefni fram undan.

„Við væntum mikils af honum og þekkjum vel til hans starfa í gegnum tíðina.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK