Garðar Stefánsson nýr forstjóri Valitor

Garðar er núverandi forstjóri Rapyd Europe og mun taka við …
Garðar er núverandi forstjóri Rapyd Europe og mun taka við sem forstjóri Valitor á Íslandi frá og með deginum í dag. Ljósmynd/Aðsend

Garðar Stefánsson hefur verið ráðinn forstjóri Valitor og tekur við starfinu af Herdísi Dröfn Fjeldsted. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor. Fjártæknifyrirtækið Rapyd gekk í sumar formlega frá kaupum á Valitor af Arion banka. Garðar er núverandi forstjóri Rapyd Europe og mun taka við sem forstjóri Valitor á Íslandi frá og með deginum í dag.

„Eftir að hafa leitt vegferð Rapyd á íslenska markaðnum undanfarin fjögur ár ásamt því að vera með víðtæka þekkingu á greiðslulausnum bæði á innlendum sem og erlendum mörkuðum er Garðar Stefánsson best til þess fallinn að leiða Valitor nú þegar fyrirtækið er formlega komið í eigu Rapyd,“ segir Arik Shtilman, forstjóri og meðstofnandi Rapyd í tilkynningunni.

„Ísland er heimili Rapyd í Evrópu og ráðning Garðars sem forstjóra Valitor er í takti við vilja og áætlanir fyrirækisins að styrkja rekstur Evrópustarfseminnar hérlendis og halda áfram þeirri vegferð að þjónusta og auðvelda viðskiptavinum að færa sig inn á nýja alþjóðlega markaði.“

Herdís Dröfn Fjeldsted, fráfarandi forstjóri Valitor.
Herdís Dröfn Fjeldsted, fráfarandi forstjóri Valitor. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK