Play auglýsir yfir 200 störf

Play leitar meðal annars að 150 flugliðum fyrir næsta vor.
Play leitar meðal annars að 150 flugliðum fyrir næsta vor. Ljósmynd/Aðsend

Flugfélagið Play hefur auglýst eftir umsækjendum í 205 ný störf en flugfélagið leitar nú að um 150 flugliðum fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf og að 55 flugmönnum, bæði með og án reynslu.

Segir í tilkynningu að um sé að ræða stærstu ráðningu félagsins í einu vetfangi en í sumar störfuðu um 150 flugliðar og um 70 flugmenn hjá félaginu.

Kemur fram að ráðningarnar séu í tak við enn frekari umsvif Play en félagið mun taka fjórar nýjar flugvélar í notkun næsta vor. Nú þegar er félagið með sex vélar í rekstri.

„Nú er rétti tíminn til að manna vélarnar fyrir næsta sumar. Við erum afar stolt af því að við séum að skapa öll þessu nýju störf og ég er vægast sagt spenntur að fá nýtt fólk í PLAY liðið,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play. 

Hægt er að sækja um störfin á vefsíðu Play. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK