Kynna sig fyrir fullum sal af fjárfestum

Startup SuperNova er stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki og vettvangur til tengslamyndunar …
Startup SuperNova er stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki og vettvangur til tengslamyndunar við aðila í atvinnulífinu, reynda mentora og frumkvöðla sem hafa yfir að ráða þekkingu og reynslu á sprotaumhverfinu. Myndin er frá fjárfestadeginum í fyrra. Ljósmynd/Aðsend

Fjárfestadagur Startup SuperNova fer fram föstudaginn 9. september en viðskiptahraðalinn stendur yfir í fimm vikur og er markmiðið að hraða framgangi þeirra fyrirtækja sem taka þátt og gera þau fjárfestingarhæf að hraðlinum loknum.

Á fjárfestadeginum kynna 10 teymi sem tekið hafa þátt í hraðlinum í sumar sprotafyrirtæki sín fyrir fullum sal af fjárfestum og öðrum gestum, að því er segir í tilkynningu frá Klak. 

Fram kemur, að Startup SuperNova sé stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki og vettvangur til tengslamyndunar við aðila í atvinnulífinu, reynda mentora og frumkvöðla sem hafi yfir að ráða þekkingu og reynslu á sprotaumhverfinu. 

„Í ár hófst hraðallinn á þriggja daga Masterclass þar sem fjölmargir sérfræðingar, fagfólk og frumkvöðlar í íslensku atvinnulífi miðluðu þekkingu sinni og reynslu til 56 sprotafyrirtækja. Tíu af þeim fyrirtækjum voru svo valin til áframhaldandi þátttöku í Startup SuperNova.

Fyrirtæki sem valin voru í hraðalinn fengu fullbúna vinnuaðstöðu í hugmyndahúsinu Grósku í Vísindagörðum, fræðslu, þjálfun og ráðgjöf frá reyndum frumkvöðlum, fjárfestum og öðrum sérfræðingum auk stuðnings við að koma viðskiptahugmynd sinni á framfæri og efla tengslanetið,“ segir í tilkynningunni.

Frekari upplýsingar um teymin 10 sem kynna á fjárfestadeginum má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK