YAY opnar í Kanada

Ari Steinarsson, framkvæmdastjóri YAY.
Ari Steinarsson, framkvæmdastjóri YAY. Ljósmynd/Aðsend

Fjártæknifyrirtækið YAY ehf., sem á og rekur meðal annars Yay-gjafakortatækni, hefur gert samstarfssamning við kanadísku kortaþjónustuna og fjármálatæknifyrirtækið Everyday People Financial Inc. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 

Everyday People mun, í gegnum nýstofnað dótturfélag, njóta einkaréttar á því að dreifa Yay-gjafakortinu í kerfi YAY í Kanada.

„Þetta er okkur mikilvægt samstarf þar sem við bjóðum nú tækni okkar á næstum 40 milljóna manna markaði“, segir Ari Steinarsson, framkvæmdastjóri YAY í tilkynningu.

„Við höfum unnið að stækkuninni síðustu mánuði og það er okkur ánægja að hefja leikinn á Kanadamarkaði með Everyday People. EP er framsækið fyrirtæki með áratugareynslu af fjármálaþjónustu og með sterk tengsl innan atvinnugreinarinnar.“

Í tilkynningunni kemur fram að Everyday People er kortaumsjónarfyrirtæki og tæknivettvangur þess styður við kerfi á sviði lánafjármögnunar og fyrirframgreiddra korta. Gjafakortatækni YAY og vörumerkjasamstæða EP koma til með að bjóða upp á einstaka þjónustu á Kanadamarkaði.

„Samspil einstakrar tækni YAY og verkvangs okkar mun efla kerfið til muna“, segir Barret Reykdal, forstjóri og framkvæmdastjóri Everyday People, í téðri tilkynningu.

„Kanadíski gjafakortamarkaðurinn veltir á milli 7-8 milljarðar kanadískra dala árlega og sífellt fleiri Kanadabúar velja frekar að kaupa gjafakort í snjallforritum. Sem fjármálatæknifyrirtæki erum við spennt fyrir því að bjóða þessa vöru í Kanada.“

Kerfið er í þróun og ætlunin er að hleypa því af stokkunum í Kanada síðar á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK