Bætist í eigendahópinn hjá Rétti

Védís Eva nýjasti eigandi lögmannstofunnar Réttur.
Védís Eva nýjasti eigandi lögmannstofunnar Réttur. Ljósmynd/Aðsend

Védís Eva Guðmundsdóttir er nú orðinn ein af fimm eigendum lögmannsstofunnar Réttur – Aðalsteinsson & Partners.

Védís Eva hefur starfað hjá stofunni frá árinu 2020 en fyrir það vann hún hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel (ESA), við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg og hjá Mörkinni lögmannsstofu. 

Þá sinnti hún málflutningi í fyrsta málinu sem rekið var gegn íslenska ríkinu hjá yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg árið 2019. 

Í tilkynningu frá Rétti segir að hún hafi yfirgripsmikla reynslu af mannréttindamálum og Evrópurétti, sem séu hennar helstu starfssvið ásamt hugverkarétti, persónuvernd, samningagerð, skaðabótarétti og málflutningi. 

„Full tilhlökkunar“

„Réttur er framsækin lögmannsstofa sem er skipuð þrautseigum lögmönnum sem hafa brennandi hugsjón og trú á mikilvægi þess að standavörð um grundvallarréttindi okkar allra.

Ég er full tilhlökkunar að takast á við nýtt hlutverk hjá Rétti og hlakka til að vinna áfram með öflugu teymi stofunnar í krefjandi verkefnum,“ er haft eftir Védísi Evu í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK