Verslunin Nettó hefur opnað eigin netverslun á netto.is, en undanfarin fimm ár hefur Nettó haldið úti netverslun í samstarfi við aha.is.
Fram kemur í tilkynningu að markmiðið með nýju netversluninni sé að mæta auknum kröfum viðskiptavina á netinu en umfang netverslunar Nettó hefur margfaldast frá því að hún var opnuð í september 2017.
Þá er komin tenging við Samkaupa appið. Tengingin veitir viðskiptavinum 2% afslátt af matarkörfunni.
„Við höfum átt í farsælu samstarfi með aha.is en við höfum fulla trú á að netverslun verði hluti af okkar kjarnastarfsemi á næstu árum samhliða því sem hlutdeild hennar á matvörumarkaðnum eykst.“
„Í dag þjónustar netverslunin okkar bæði höfuðborgarsvæðið og viðskiptavini um allt land en opnun eigin netverslunar er mikilvægur liður í að bæta þjónustu við landsmenn auk þess sem með þessu erum við að halda áfram að einfalda og bæta upplifun fólks við matarinnkaupin,“ er haft eftir Heiðari Róbert Birnusyni, rekstrarstjóra Nettó.