Bjarki Már leiðir stafræna þróun hjá N1

Bjarki Már Flosason.
Bjarki Már Flosason. Aðsend mynd.

Bjarki Már Flosason hefur verið ráðinn í nýja stöðu forstöðumanns stafrænnar þróunar hjá N1 og kemur nýr inn í forstöðumannahóp félagsins. Bjarki mun meðal annars vinna að áframhaldandi þróun og innleiðingu á stafrænum þjónustulausnum fyrir viðskiptavini N1, ásamt því að stuðla að frekari framþróun á innri kerfum félagsins

Þetta kemur fram í tilkynningu frá N1.

Bjarki sinnti áður stöðu þróunarstjóra stafrænna lausna hjá N1 og starfaði fyrir það sem markaðsstjóri Kreditkorta og þróunarstjóri greiðslulausna hjá Íslandsbanka. Hann er með B.Sc.-gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Við bjóðum Bjarka hjartanlega velkominn í teymi lykilstjórnenda N1 þar sem hann mun sjá til þess að félagið standi framarlega í stafrænni þróun hér á landi. Mörg stafræn verkefni eru á dagskrá, svo sem útgáfa nýs þjónustuapps sem áætlað er að ýta úr vör á næstunni sem og áframhaldandi þróun á vildarkerfi N1. Þekking Bjarka á þessu sviði og stafrænum innviðum félagsins mun svo sannarlega styðja við áframhaldandi sókn N1,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK