Aðalfyrirlesari á sjálfbærnidegi Landsbankans er Tjeerd Krumpelman frá ABN AMRO banka í Hollandi en hann hefur einstakt lag á að tala um sjálfbærni fyrirtækja á mannamáli, að því er segir í tilkynningu frá Landsbankanum. Hann hefur yfir 20 ára reynslu í fjármálageiranum og annast m.a. sjálfbærniráðgjöf hjá ABN AMRO sem er í fararbroddi fjármálafyrirtækja í sjálfbærum fjármálum.
Bankastjóri Landsbankans setur fundinn og fjallar um hlutverk og ábyrgð fjámálafyrirtækja og bankans í sjálfbærni. Framkvæmdastjórar og fulltrúar fyrirtækja í sjávarútvegi, mannvirkjagerð og skipaflutningum fara yfir hvað hefur virkað hjá þeim í þeirra sjálfbærnivinnu og hvað þurfi að gera betur. Einnig verður farið yfir nýja sýn á hagkerfið sem byggir á sjálfbærni.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.
Fundurinn er sérstaklega ætlaður stjórnendum fyrirtækja, fólki í rekstri og fjárfestum. Tilgangurinn með fundinum er að þau sem sækja fundinn eða fylgjast með honum í streymi fái betri innsýn í hvað beri hæst í þessum málaflokki og fái skýrari hugmyndir um næstu skref í sjálfbærnimálum fyrir sitt fyrirtæki eða fjárfestingar.
Dagskráin hefst kl. 9.00. Í tengslum við fundinn verður fyrsta rafflugvélin á Íslandi til sýnis í Grósku og að fundi loknum býðst gestum að smakka snarl af fyrsta vetnisgrillinu á Íslandi.
Dagskrá:
Fundarstjóri er Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri Landsbankans.