Stefnt er að því að ljúka samningum um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar fyrir 15. desember nk. Þetta segir Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans í skriflegu svari til ViðskiptaMoggans. Kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar voru tilkynnt í byrjun september. Fram kom að kaupverðið væri þrír milljarðar króna en samkomulagið með fyrirvara um fjármögnun, niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Aðspurður um fjármögnun vísar Erling Freyr á tilkynningu Ljósleiðarans frá því í júní, þar sem fram kom að hafinn yrði undirbúningur að aukningu hlutafjár. Sá undirbúningur stendur yfir að hans sögn.
Gert er ráð fyrir að aukið hlutafé komi frá nýjum meðeiganda. Það er þó háð samþykki eigenda Orkuveitunnar, sem er að stærstum hluta til Reykjavíkurborg.
Nánar er fjallað um málið í ViðskiptaMogganum í dag.