Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til borgarinnar Porto í Portúgal.
Fyrst verður flogið á skírdag á næsta ári, eða fimmtudaginn 6. apríl.
Flogið verður tvisvar í viku fram í lok október, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.
Porto er annar áfangastaður Play í Portúgal, en flugfélagið var með áætlunarferðir til höfuðborgarinnar Lissabon í ár og verður framhald á þeim ferðum á næsta ári.
Segir í tilkynningunni að þetta sé í fyrsta sinn sem flugfélag býður upp á beint áætlunarflug á milli Porto og Íslands.
„Porto er afar vinsæll áfangastaður fyrir ferðamenn en borgin hefur í tvígang verið valin besti evrópski áfangastaðurinn af samtökunum European Best Destinations, árin 2014 og 2017,“ segir þar.
Haft er eftir forstjóranum, Birgi Jónssyni, að flugfélagið hafi boðað að það vilji verða leiðandi í ferðum á milli Íslands og Íberíuskagans. Það sé sýnt í verki með þessu flugi.
„Fyrir erum við með Lissabon, sem var einn af vinsælustu áfangastöðum Play í ár, og þar að auki verðum við með sjö áfangastaði á Spáni, þar af fjóra á Spáni allt árið um kring. Nú eiga Íslendingar meiri möguleika á að komast í sólina á hagkvæman hátt og sömuleiðis er áhugi Portúgala og Spánverja mikill á Íslandi enda hafa þeir tekið afar vel í þjónustu Play.“