Sigríður og Arnar í eigendahóp Brandenburgar

Sigríður Theódóra Pétursdóttir og Arnar Halldórsson eru nú meðal eigenda …
Sigríður Theódóra Pétursdóttir og Arnar Halldórsson eru nú meðal eigenda Brandenburgar.

Sigríður Theódóra Pétursdóttir og Arnar Halldórsson hafa bæst í eigendahóp auglýsingastofunnar Brandenburg en þau hafa bæði starfað sem stjórnendur á stofunni undanfarin ár. Með þessu eru eigendur Brandenburgar orðnir sex, en fyrir í eigendahópnum eru þeir Bragi Valdimar Skúlason, Hrafn Gunnarsson, Jón Ari Helgason og Ragnar Gunnarsson. 

Sigríður Theódóra tók við sem framkvæmdastjóri Brandenburgar snemma á þessu ári. Áður vann hún sem viðskiptastjóri og síðar aðstoðarframkvæmdastjóri stofunnar ásamt því að sitja í framkvæmdastjórn. Sigríður Theódóra út­skrifaðist með B.A. gráðu í ís­lensku og M.A. gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskipt­um frá Há­skóla Íslands. Auk þess lauk hún sér­hæfðu meist­ara­prófi í markaðslegri stjórn­un og sam­skipt­um frá Tou­lou­se Bus­iness School. Þá situr Sigríður Theódóra í stjórn SÍA og Ímark.

Arnar hóf störf á Brandenburg sem aðstoðarhönnunarstjóri árið 2020 og er nú sköpunarstjóri, ásamt því að leiða stefnumótun í verkefnum stofunnar. Hann var áður yfirhönnar- og teymisstjóri á nokkrum af virtustu auglýsingastofum Skandinavíu á borð við SMFB, The Oslo Company og NORD DDB. Þá hafa ýmis verkefni sem Arnar hefur leitt unnið til alþjóðlegra verðlauna og má þar nefna Cannes Lions, The One Show, Eurobest og New York Festivals. Arnar lauk námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands og útskrifaðist með M.Sc. gráðu í sjónlist frá Duncan of Jordanstone College of Art and Design í Skotlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK