Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Haga hf. á öllu hlutafé í Eldum rétt ehf. án íhlutunar, eftir að samruninn var tekinn til ítarlegrar rannsóknar.
Farið var í rannsókn í ljósi sterkrar stöðu Haga á dagvörumarkaði, umfangs Eldum rétt í sölu á matarpökkum og gagna málsins að öðru leyti, að því er fram kemur í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.
„Í sumar var aðilum samrunans birt andmælaskjal þar sem lýst var því frummati eftirlitsins að samruninn raskaði samkeppni. Ritun andmælaskjals er liður í ítarlegri rannsókn samkeppnisyfirvalda og miðar að því að tryggja að allar upplýsingar og sjónarmið liggi fyrir við endanlega ákvörðun. Af eðli andmælaskjala leiðir að frummat sem fram kemur í þeim getur tekið breytingum ef frekari sjónarmið málsaðila og rannsókn Samkeppniseftirlitsins kallar á slíkt, segir á vef Samkeppniseftirlitsins.
Í kjölfar þess að samrunaaðilar settu fram sjónarmið til svars við andmælaskjalinu og Hagar lögðu fram tillögur að skilyrðum í því skyni að mæta áhyggjum eftirlitsins, óskaði Samkeppniseftirlitið eftir athugasemdum og sjónarmiðum markaðsaðila um frummatið og andmælin.
„Með þessari viðbótarathugun aflaði Samkeppniseftirlitið frekari sjónarmiða og gagna hjá samrunaaðilum og öðrum markaðsaðilum, ásamt því að aflað var frekari upplýsinga, meðal annars um þróun í sölu samsettra matarpakka í nágrannalöndum.“
Á grunni rannsóknarinnar komst Samkeppniseftirlitið að heimila beri samrunann án íhlutunar.