Nýir starfsmenn hjá Leikbreyti

Regína Björk Jónsdóttir.
Regína Björk Jónsdóttir.

Regína Björk Jónsdóttir hefur verið ráðin viðskiptastjóri Wallet Innleiðinga hjá Leikbreyti, Mimoza Róbertsdóttir verkefnastjóri Wallet lausna og Kristófer Antonsson tæknimaður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Regína starfaði áður sem verkefnisstjóri hjá Ljósleiðaranum, sem viðskiptastjóri hjá fyrirtækjasviði Nova sem og starfaði um árabil þar á undan hjá Arion banka. Mimoza er tölvunarfræðingur Bsc. frá Háskóla Íslands og starfaði áður hjá Högum þar sem hún hafði umsjón með vefverslun tískuvöruverslunarinnar Zara. Kristófer stundar nám á tölvufræðibraut Tækniskólans en mun starfa samhliða námi hjá Leikbreyti.

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá þau öll til starfa á mikilvægum tímapunkti fyrirtækisins sem er í miklum veldisvexti með auknum verkefnum í kringum Wallet lausnir fyrirtækisins,“ segir Yngvi Tómasson, framkvæmdastjóri Leikbreytis í tilkynningunni.

Leikbreytir er á mikilli siglingu þessa dagana og mörg af stærstu verslunarfyrirtækjum landsins hafa valið lausn fyrirtækisins, Gift to Wallet, til að halda utan um gjafakort sín en lausnin hentar bæði fyrir verslanir og verslanamiðstöðvar. Lausnin gerir verslunum kleift að gefa út gjafakort, vildarkort og starfsmannakort bæði á hefðbundin hátt í prenti og í Apple og Google Wallet. Með kortunum er hægt að greiða fyrir vörur í verslun þar sem kerfið er samþáttað LS Retail og DK POS ásamt flestum helstu vefverslunarkerfum og afgreiðslukerfum.

Mimoza Róbertsdóttir.
Mimoza Róbertsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK