Rún Ingvarsdóttir hefur verið ráðin til Orkuveitu Reykjavíkur í teymi sérfræðinga samskipta- og samfélags, en það er eining sem heyrir undir forstjóra. Hún mun sinna upplýsingamálum og samskiptum við fjölmiðla fyrir Veitur, dótturfyrirtæki OR, og starfa þar sem samskiptastjóri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Áður hafði Ólöf S. Baldursdóttir gegnt stafi samskiptastjóra Veitna. Í tilkynningunni kemur fram að Rún muni einnig vinna að sjálfbærnimálum innan fyrirtækisins.
Rún kemur til OR frá Landsbankanum þar sem hún starfaði undanfarin sjö ár sem sérfræðingur í samskiptamálum. Þar áður starfaði hún sem fréttamaður á fréttastofu RÚV frá árinu 2007. Rún er með MA-gráðu í alþjóðamálum frá Berkeley-háskóla í Kaliforníu og BA-gráðu í mannfræði og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands.
Samkvæmt svari frá Breka Logasyni, stjórnanda á sviði samskipta og samfélags hjá OR, starfa nú samtals sjö, að honum meðtöldum, á sviðinu.
Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins, en veitusvæðið er að mestu á höfuðborgarsvæðinu, en einnig víða á Suður- og Vesturlandi. Lagnir og strengir eru alls 9.000 km að lengd. Veitur þjónusta ríflega 70% landsmanna á einn eða annan hátt.