Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins.
Maríjon er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur undanfarið starfað sem lögfræðingur á skrifstofu flokksins. Áður en hún hóf störf hjá Sjálfstæðisflokknum sinnti Maríjon fjölmiðla- og lögfræðiráðgjöf hjá almannatengslafyrirtækinu Kvis. Þá er hún jafnframt með víðtæka reynslu á sviði lögfræði og starfaði meðal annars sem lögfræðingur hjá Fjarskiptastofu og sem fulltrúi hjá Nordik lögfræðiþjónustu.
„Við erum einstaklega lánsöm að fá Maríjon til liðs við okkur en hún hefur mikla og góða reynslu sem mun nýtast vel í störfum okkar í borginni,“ er haft eftir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í fréttatilkynningu um nýja framkvæmdastjórann.
Maríjon hefur lengi verið viðriðin pólitískt starf Sjálfstæðisflokksins en hún sat meðal annars í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna árin 2009-2011 og var enn fremur verkefnastjóri hjá flokknum í borgarstjórnarkosningunum árið 2010.
„Það eru forréttindi að fá að vinna við áhugamál sitt og láta gott af sér leiða á meðan, fyrir borgarbúa og alla þá einstaklinga sem borgina sækja. Reykjavík á mikið inni og það á borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins einnig. Ég kem til með að gera mitt besta til að halda utan um góðan hóp og einnig það öfluga starf sem hann vinnur,“ er haft eftir Maríjon í tilkynningunni.