Skjár 1 opnaði nýja streymisveitu, Filmflex, í síðustu viku. Þar má finna sjónvarpsmyndir, sjónvarpsmyndaflokka og kvikmyndir fyrir áskrifendur.
Þetta kemur fram í tilkynningu en Íslenska sjónvarpsfélagið er rekstraraðili Skjás 1.
Lögð er áhersla á eldri kvikmyndir með íslenskum texta.