Hætta framleiðslu á Svala

Það þekkja flestir Svala.
Það þekkja flestir Svala. Ljósmynd/Aðsend

Svali hefur verið vinsæll svaladrykkur hér á landi í yfir fjörutíu ár en vegna breytinga á smekk og þörfum neytenda hefur verið ákveðið að hætta framleiðslu og sölu á Svala við árslok.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Einar Snorri Magnússon, forstjóri Coca-Cola á Íslandi.
Einar Snorri Magnússon, forstjóri Coca-Cola á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

„Við höfum átt farsæla áratugi í fylgd Svala en hann er engu að síður barn síns tíma og við erum á annarri vegferð í dag. Kröfur neytenda og smekkur fólks þróast í sífellu og samhliða því þurfum við að fara yfir árangur og stöðu vörumerkja okkar reglulega,“ er haft eftir Einari Snorra Magnússyni, forstjóra Coca-Cola á Íslandi. 

Einar segir að undanfarið hafi mikil vinna verið lögð í að endurmóta vöruframboð The Coca-Cola Company á heimsvísu og er það stefna fyrirtækisins að beina kröftum sínum að þeim vörumerkjum sem eru hvað vinsælust.

„Með þessari stefnu styrkjum við þau vörumerki sem eru eftir, sköpum rými fyrir nýsköpun og erum betur í stakk búin til að bregðast við þörfum viðskiptavinanna. Við kveðjum því Svala að svo búnu og þökkum honum samfylgdina,“ segir enn fremur.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK