Hampiðjan kaupir norskt félag og stefnir á Aðalmarkað

Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar.
Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar. mbl.is/Kristinn

Hampiðjan hefur skrifað undir kaupsamning við eigendur norska félagsins Mørenot um kaup á öllu hlutafé Mørenot.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en Mørenot er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsstöðvar á um 30 stöðum víðs vegar um heiminn. Félagið veitir þjónustu og selur vörur til fyrirtækja í sjávarútvegi, fiskeldi og olíuiðnaði.

Þá kemur einnig fram að í kjölfar undirritunar kaupsamnings verði stefnt að því að hlutabréf Hampiðjunnar, sem nú eru skráð á Nasdaq First North, verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi á árinu 2023. Gert er ráð fyrir því að við skráningu á aðalmarkað verði hlutafé aukið og skuldir Mørenot endurskipulagðar ásamt því að fjármagn verði sótt til aukinna fjárfestinga í framleiðslustarfsemi Hampiðjunnar í Litháen.

Greitt að mestu með hlutafé í Hampiðjunni

Kaupverðið verður að mestu greitt með hlutabréfum í Hampiðjunni, en seljendur munu fá afhenta tæplega 51 milljón hluti í Hampiðjunni á genginu 112 kr. á hlut, en það er 20,4 % hærra en gengi hlutabréfanna við lokun markaða í gær. Þá kemur fram að fyrirhugað sé að hækka hlutafé Hampiðjunnar sem því nemur og mun hlutur seljenda að hækkun lokinni nema um 9,4% af heildarhlutafé Hampiðjunnar. Um 14 milljónir norskra króna (200 milljónir ísl. króna) verða greiddar með handbæru fé.

Undirritun kaupsamningsins er gerð í kjölfar áreiðanleikakannana sem nú er lokið. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlita Íslands, Grænlands og Færeyja og einnig með fyrirvara um að hluthafafundur Hampiðjunnar samþykki heimild til stjórnar um útgáfu nýrra hluta til greiðslu kaupverðsins og að núverandi hluthafar Hampiðjunnar falli frá forgangsrétti til hinna nýju hluta.

 „Mørenot er félag sem við höfum lengi litið á sem heppilega viðbót við samstæðu Hampiðjunnar. Landfræðileg dreifing og vöruúrval félaganna fara afskaplega vel saman og koma þau til með að styrkja hvort annað verulega á ýmsum sviðum,“ segir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK