Guðbjörg Heiða ráðin forstjóri Varðar

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir. Arnþór Birkisson

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf forstjóra Varðar. Guðbjörg Heiða hefur starfað hjá Marel frá árinu 2011, síðast sem framkvæmdastjóri fiskiðnaðar og framkvæmdastjóri Marel á Íslandi. Áður leiddi Guðbjörg vöruþróunarteymi Marel á Íslandi og í Bretland.

Í tilkynningu kemur fram að gert sé ráð fyrir því að hún taki við starfinu 1. apríl næstkomandi og mun Guðmundur Jóhann Jónsson, sem sagði starfi sínu lausu í október eftir 16 ár í stóli forstjóra, sinna starfinu þangað til.

„Vörður er virkilega áhugavert félag sem hefur verið í góðum vexti undanfarin ár. Ég hlakka til að kynnast fyrirtækinu og þeim öfluga hópi fólks sem þar starfar. Tryggingar skipta okkur öll máli og það er spennandi verkefni að fá taka þátt í að móta þjónustu félagsins til framtíðar,“ segir Guðbjörg Heiða í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK