Staða Ljósleiðarans, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, verður að öllu óbreyttu ekki rædd á fundi borgarstjórnar á þriðjudag í næstu viku.
Meirihluti forsætisnefndar hafnaði í gær tillögu Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að setja málið á dagskrá borgarstjórnar.
Ljósleiðarinn, sem skuldar nú þegar 14 milljarða króna, stefnir á aukna skuldsetningu til að fjárfesta í grunnneti Sýnar og útvíkka starfsemi félagsins.
Það mun hafa áhrif á efnahagsreikning Orkuveitunnar og að lokum á Reykjavíkurborg.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.