Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði á kynningarfundi eftir fund peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að vinnumarkaðurinn og hið opinbera hefðu skorað sjálfsmark.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að hækka vexti bankans um 0,5 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 6,5%.
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, hætti sér út á fótboltavöllinn í samlíkingu sinni í dag. Hún sagði alla þurfa að spila saman.
Hún sagði bankann ekki hafa gert ráð fyrir því í október, þegar seðlabankastjóri hafi gefið boltann til aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera, að þeir tækju upp á því að spila „solo“ í allt önnur mörk.
Ásgeir skaut þá inn í að þeir aðilar hafi öllu heldur skorað sjálfsmark.
Rannveig sagði minna aðhald frá hinu opinbera og dýra kjarasamninga benda til að það sé ekki hægt að biðla til þessara aðila að spila með því þeir séu greinilega í allt öðrum veruleika.