Ásgerður Pétursdóttir verður yngst allra þeirra sem hafa tekið sæti í peningastefnunefnd þegar skipunartímabil hennar hefst 21. febrúar.
Hún er á fertugasta aldursári og verður þar með um þremur árum yngri en Herdís Steingrímsdóttir sem var 42 ára þegar hún tók sæti í nefndinni. Þar á eftir kemur Þórarinn Gunnar Pétursson, núverandi aðalhagfræðingur Seðlabankans, sem tók sæti í nefndinni 43 ára.
Með komu Ásgerðar í nefndina verður meirihluti nefndarinnar einnig skipaður konum.
Tilkynnt var um skipun Ásgerðar fyrr í dag en hún er lektor í hagfræði við Háskólann í Bath á Englandi. Hún er með doktorspróf í hagfræði frá University of New South Wales í Sydney, Ástralíu og lauk meistaraprófi í hagfræði frá sama háskóla.
Hún hefur unnið á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands og stundað rannsóknir við rannsóknardeild Seðlabankans í Svíþjóð. Hennar áherslusvið er peningahagfræði, en Ásgerður hefur þróað og unnið með líkön til að greina hagfræðileg úrlausnarefni er varða m.a. fjármálamarkaði, rafræna seðlabankamynt og framkvæmd peningastefnu.
Í svari Seðlabankans við fyrirspurn mbl.is má sjá að síðan núverandi fyrirkomulagi peningastefnunefndar var komið á árið 2009 hafa 12 setið í nefndinni. Meðalaldur þeirra þegar þau settust í nefndina var 49,2 ár, en aldursforsetinn er Rannveig Sigurðardóttir, núverandi varaseðlabankastjóri peningastefnu, sem var 62 ára þegar hún kom í nefndina.
Sjá má lista yfir alla þá sem hafa setið í nefndinni hér fyrir neðan og aldur þeirra þegar þau settust í nefndina. Listanum er raðað í tímaröð, þannig að þeir sem settust fyrst í nefndina eru fyrst í listanum.