Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, eru gestir efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sem heldur opinn fund í dag þar sem fjallað verður um áhrif verðbólgu á hagkerfið og heimilin í landinu.
Fundurinn hefst kl. 9:10 og verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér fyrir neðan.