Í ljósi nýjustu verðbólgumælingar Hagstofunnar mun Seðlabankinn neyðast til að taka stór skref í vaxtahækkun á næsta fundi sínum til að stemma stigu við verðbólgunni. Þetta segir Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, í samtali við mbl.is
Seðlabankinn og flestir greiningaraðilar höfðu gert ráð fyrir því að verðbólgan myndi lækka á milli mánaða en niðurstaðan varð hins vegar allt önnur og fór tólf mánaða verðbólga yfir 10% í fyrsta skiptið í tæplega fjórtán ár, eða frá því í september árið 2009 þegar verðbólgan var á niðurleið í kjölfar efnahagshrunsins.
Þannig gerðu greiningardeild Íslandsbanka og hagfræðideild Landsbankans báðar ráð fyrir að verðbólgan í febrúar myndi mælast 9,6%. Niðurstaðan varð hins vegar ársverðbólga upp á 10,2%.
Erna segir að ástæðan fyrir þessum mun í mælingu og á væntingum greiningaraðila megi helst finna í tveimur undirliðum verðbólgumælinganna. Í fyrsta lagi hafi áhrif útsöluloka verið miklu meiri í febrúar en gert var ráð fyrir, sérstaklega þegar kemur að húsgögnum og heimilisbúnaði. Það þýðir í raun að verð hækkaði meira og skarpar þegar útsölum lauk en greiningaraðilar höfðu gert ráð fyrir.
Í öðru lagi hafi flugfargjöld hækkað um 0,7% milli mánaða. Það eitt og sér hafi reyndar takmörkuð áhrif á verðbólguna, en greiningaraðilar höfðu hins vegar gert ráð fyrir 4-9% lækkun flugfargjalda sem hefði þá komið til móts við hækkun annarra liða. Erna segir einnig að þegar undirliðir mælingarinnar séu skoðaðir komi í ljós að meiri verðbólguþrýstingur í kerfinu en greinendur höfðu gert ráð fyrir, meðal annars á matvöru og þjónustu.
„Spárnar eru allar dálítið út á þekju og maður getur gert ráð fyrir að það geti tekið talsvert lengri tíma og kallað á harðari viðbrögð frá peningastefnunni til að ná verðbólgunni sýnilega niður,“ segir hún.
Á móti vinni hins vegar að ef áhrif útsöluloka hafi vegið svona sterkt inn núna ætti það að þýða að þrýstingurinn og áhrifin af útsölulokunum verði minni í mars sem gæti þá hjálpað til við að draga ársverðbólguna niður.
Á síðasta fundi peningastefnunefndar sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að hann áliti að verðbólgan hefði náð hámarki og væri á leiðinni niður. Þetta var þó ekki í fyrsta skipti sem Ásgeir hefur verið bjartsýnn um hvernig gangi í þeirri glímu, en á síðustu tveimur fundum hefur hann horft til þess að hámarkinu sé náð varðandi verðbólguna.
Þannig sagði hann í október að mögulega væri komið að vatnaskilum og í desember sagði Ásgeir að hækkun vaxta, sem þá fóru upp í 6% ætti að vera nóg til að vinna á verðbólgunni. Sagði hann jafnframt á þeim fundi að Seðlabankinn væri reiðubúinn að halda áfram með vaxtahækkanir ef þörf væri á, en stýrivextir bankans standa nú í 6,5%.
Sjálfur setti hann sér tímaramma á síðasta fundi nefndarinnar og sagði að verulegur árangur þyrfti að vera kominn fram fyrir haustið. „Annars verður það ávísun á fleiri vandræði á vinnumarkaði. Við sjáum hvaða áhrif þessi háa verðbólga hefur á vinnumarkaðinn núna, verkföll og vesen,“ sagði Ásgeir þá.
Erna segir að peningastefnunefnd hafi síðast sagt að nefndin væri ekki að stjórnast af einni verðbólgumælingu, heldur horfði yfir lengra tímabil í ákvarðanatöku sinni.
„En ég held samt að staðan sé bara þannig að þau geta ekki horft framhjá þessari mælingu og í ljósi þess að við síðustu ákvarðanatöku þá var rætt að hækka vexti um 0,5 upp í 1 prósentustig. Þá held ég að við getum alveg reiknað með því að þegar nefndin komi saman nú í mars muni hún neyðast til að taka nokkuð stórt skref út frá bara þessari mælingu og út frá því sem virðist vera miklu meiri þensla og verðbólguþrýstingur í kerfinu.“
Spurð nánar um hvað hún eigi við með stór skref segir Erna að búast megi við því að hálf prósentustig sé að verða algjört lágmark.
Í ljósi fyrrnefndra útsöluáhrifa sem komu sterk inn í þessum mánuði og meðal annars þess að stórir mánuðir í húsnæðishækkunum á síðasta ári fara að detta út í ársverðbólgunni segir Erna að hún eigi von á því að verðbólgan muni minnka í næsta mánuði. „Það er líklegt að við förum niður fyrir 10% í næsta mánuði, en ekki mikið niður fyrir það. Við verðum þarna í grendinni,“ segir hún.