Nýverið var gengið frá kaupum Reykjanesklasans ehf. á byggingum Norðuráls í Helguvík segir í tilkynningu frá Reykjanesklasanum. Húsnæðið hefur staðið autt um árabil en þar er fyrirhugað að koma upp „Græna iðngarðinum“ eða „ Iceland Eco-Business Park “.
Græni iðngarðurinn byggir á svipaðri hugmyndafræði og Íslenski sjávarklasinn hefur beitt á undanförnum áratugum við að leiða saman fólk og fyrirtæki tengda nýsköpun. Iðngarðurinn mun geta hýst innlend og erlend fyrirtæki sem þurfa rými fyrir sprotastarf, rannsóknar- og tilraunastarfsemi, þróun, framleiðslu og samsetningu á vörum eða aðstöðu fyrir fiskeldi og ræktun, svo eitthvað sé nefnt.
Markmið garðanna er að styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækjanna í hringrásarhagkerfinu með því að minnka úrgang eins og kostur er. Hvers konar úrgangur frá starfsemi fyrirtækjanna er endurnýttur eða nýttur sem auðlind fyrir önnur fyrirtæki í garðinum.
Græni iðngarðurinn og Auðlindagarðurinn á Reykjanesi hyggjast efla samstarf sín í milli. Þá á Græni iðngarðurinn einnig í nánu samstarfi við Kadeco sem er Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Með samstarfi við sveitarfélög á svæðinu, Reykjaneshöfn og aðra hagaðila er stefnt að því að starfsemi Græna iðngarðsins stuðli að aukinni verðmæta- og atvinnusköpun.
„Með grænum iðngarði skapast tækifæri fyrir fjölda fyrirtækja að nýta sér einstaka aðstöðu og auðlindir Reykjaness.” segir Kjartan Eiríksson, annar stofnenda Reykjanesklasans. „ Staðsetning garðsins við alþjóðaflugvöll og höfn skapar líka mikil tækifæri. Við vonum að þessi nýja starfsemi geti einnig eflt enn frekar allt samfélagið í kringum Græna iðngarðinn, aukið fjölbreytni starfa og tækifæra fyrir fólk með ólíka menntun, bakgrunn og þekkingu.“