Adrian Keating hefur verið ráðinn yfirmaður sölu- og markaðsmála (Executive Director Sales- and Marketing) hjá PLAY.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu en Adrian hóf störf í gær.
„Adrian mun vinna mjög náið með framkvæmdastjórn PLAY og aðstoða við uppbyggingu á sölu- og markaðsstarfi félagsins,“ segir í tilkynningunni.
Adrian hóf feril sinn hjá British Airways árið 1999 en hefur síðan þá starfað hjá Easy-Jet, Etihad, Malaysia Airlines og Air Transat. Síðast starfaði Adrian hjá norska flugfélaginu Norse Atlantic sem forstöðumaður sölu, markaðs- og dreifingarmála.