Guðrún Árný nýr mannauðsleiðtogi hjá Malbikstöðinni

Guðrún Árný Guðmundsdóttir nýr mannauðsleiðtogi hjá Malbikstöðinni.
Guðrún Árný Guðmundsdóttir nýr mannauðsleiðtogi hjá Malbikstöðinni. Ljósmynd/Aðsend

Guðrún Árný Guðmundsdóttir var nýverið ráðin mannauðsleiðtogi hjá Malbikstöðinni og hefur nú þegar tekið til starfa. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Guðrún þekki vel til starfsemi þess þar sem hún starfaði þar á árunum 2014 til 2020.

Guðrún er með meistarapróf í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst en í náminu lagði hún sérstaka áherslu á þjónandi forystu. Eins er Guðrún með LSRM-söngkennarapróf á vegum Royal School of Music.

Á árunum 2021 til 2022 var Guðrún stöðvarstjóri hjá Osteostrong á Íslandi en áður starfaði hún hjá A4 og sinnti þar tollskýrslugerð og almennum skrifstofustörfum. 

„Það verður nú bara að segjast að ég er himinlifandi að fá Guðrúnu aftur til starfa enda öflug manneskja, bæði í vinnu og leik. Hún á eftir að halda vel utan um mannauð fyrirtækisins og er sérstaklega mikil þörf á því núna þar sem Malbikstöðin er sífellt að stækka og eflast og starfsfólki þar af leiðandi að fjölga. Einstaklingar sem hafa hug á því að vinna með okkur í malbikinu geta verið þess fullvissir að það verður vel tekið á móti þeim. Því get ég lofað,“ er haft eftir Vilhjálmi Þór Matthíassyni, framkvæmdastjóra Malbikstöðvarinnar, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK