Beint: Iðnþing í Hörpu

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Iðnþing Samtaka iðnaðarins fer fram í Silfurbergi í Hörpu klukkan 14-16 í dag, en þar er yfirskriftin Tækifæri til vaxtar í öflugum iðnaði. Fjöldi framsögumanna kemur fram og hægt er að fylgjast með í streyminu hér að neðan.

Á þinginu verður fjallað um stóru vaxtartækifærin á Íslandi og áskoranir sem þarf að mæta í mannauði, orkuöflun og innviðauppbyggingu. Iðnaður er stærsta atvinnugreinin á Íslandi.

Þátttakendur í dagskrá

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech
  • Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
  • Valgerður Hrund Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa
  • Guðmundur Árnason, fjármálastjóri Controlant
  • Guðbjörg Rist Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Atmonia
  • Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður Qair
  • Halldóra Vífilsdóttir, framkvæmdastjóri Nordic
  • Sigurður R. Ragnarsson, stjórnarformaður ÍAV
  • Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
  • Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
  • Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK