Jón Garðar Jörundsson hefur verið ráðinn í stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs Faxaflóahafna. Hann tekur við stöðunni af Gunnari Tryggvasyni sem ráðinn var í stöðu Hafnarstjóra félagsins í lok seinasta árs.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum.
Jón Garðar hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arnarlaxi, en þar áður sem framkvæmdastjóri Hafkalks ehf. og ráðgjafi hjá KPMG.
Hann er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, MSc í fjármálum og fjárfestingum frá Edinborgarháskóla sem og MBA frá sama skóla.
„Vægi Faxaflóahafna sem leiðandi höfn í Norður Atlantshafi er sífellt að aukast og mörg spennandi verkefni eru í farvatninu m.a. með tilliti til umhverfisvænna lausna, þróunar á Grundartanga í átt að grænum iðngarði sem og með auknum áherslum útgerða skemmtiferðaskipa á farþegaskipti í Reykjavík. Ég hef því störf á nýjum vettvangi fullur tilhlökkunar og hlakka til að takast á við spennandi og krefjandi verkefni með nýjum samstarfsfélögum,“ er haft eftir Jóni Garðari í tilkynningunni.