Mýsköpun lýkur 100 milljóna króna hlutafjáraukningu

Undirritun samninga um fjármögnun á Mýsköpun fór fram á fjárfestahátíðinni …
Undirritun samninga um fjármögnun á Mýsköpun fór fram á fjárfestahátíðinni Norðanátt sem haldin var á Siglufirði. Á myndinni eru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsmálaráðherra, Halldór Jóhannsson frá KEA, Júlía K. Björke og Dagbjört Hafliðadóttir frá Mýsköpun og Hrönn Greipsdóttir og Örn Viðar Skúlason frá Nýsköpunarsjóði.

Líftæknifyrirtækið Mýsköpun ehf hefur lokið um 100 milljóna króna hlutafjáraukningu, sem leidd er af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Í tilkynningu kemur fram að aðrir fjárfestar eru Upphaf - fjárfestingasjóður KEA, Jón Ingi Hinriksson ehf. í Mývatnssveit, Jarðböðin og Fjárfestingafélag Þingeyinga. 

Mýsköpun ehf. sem stofnað var af hópi heimamanna í Mývatnssveit hefur um nokkurra ára skeið unnið að ýmsum rannsóknum á þörungum t.d. með því að einangra, greina og ákvarða ræktunarskilyrði örþörunga úr Mývatni, með framleiðslu og sölu í huga. Félagið stefnir að framleiðslu á tveimur mismunandi þörungum; Spirulina og Chlorella. 

Í tilkynningunni kemur fram að þar sem örþörungar hafa einstaklega hátt næringargildi eru þeir taldir geta skipt verulega máli fyrir fæðuframboð í framtíðinni t.a.m. sem fæðubótarefni, innihaldsefni í mat, fóður m.a. fyrir fiskeldi og mikilvæg efni í lyfjaiðnaði.

Hlutafjáraukningin mun fjármagna uppbyggingu á framleiðslu þörunga í litlum skala sem er nauðsynlegur undanfari stærri uppbyggingar á komandi árum. Markmiðið er að ná fyrst tökum á framleiðslunni í afmarkaðri einingu, tryggja gæðin og opna á söluleiðir. Mýsköpun er nú til húsa í húsnæði Landsvirkjunar við Bjarnarflag en Landsvirkjun hefur á undanförnum árum stutt vel við bakið á Mýsköpun á ýmsan hátt. Á næstu mánuðum verða áætlanir um uppbyggingu á framleiðslu í fullri stærð útfærðar betur en sú uppbygging gæti kostað allt að þremur milljörðum króna.   

„Við erum mög ánægð með aðkomu sjóðsins að uppbyggingu Mýsköpunar. Fjárfestingin er í anda áherslna Nýsköpunarsjóða um að koma snemma að sprotafyrirtækjum, fá með einkafjárfesta og brúa bil félaganna þar til verkefnin eru orðin nægilega þroskuð fyrir aðra fjárfestingarsjóði. Þá er afar ánægjulegt að styðja við verkefni sem allt í senn stuðlar að bættu fæðuframboði, styður við markmið í loftlagsmálum, skapar störf, er staðsett á Norðurlandi og leitt af þremur öflugum konum sem koma með verðmæta sérfræðiþekkingu á verkefninu,“ segir Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, í tilkynningunni.

Dagbjört Hafliðadóttir, framkvæmdastjóri Mýsköpunar, segir að fjármögnunin skapi félaginu andrými til að koma upp smáskalaframleiðslu á Spírulinu og Chlorellu í Bjarnarflagi við Mývatn og útfæra áætlanir um frekari uppbyggingu framleiðslunnar á komandi árum.

„Það er mikill áfangi og viðurkenning fyrir okkur að fá Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins til að leiða þessa fjármögnun og finna góðan meðbyr við verkefnið frá öflugum aðilum á Norðurlandi,“ segir Dagbjört.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK