Ölgerðin komin með meirihluta í vatnsfyrirtæki

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ölgerðin hefur undirritað samninga sem fela í sér að Ölgerðin verður eigandi að 51% hlutafé í vatnsútflutningsfyrirtækinu Iceland spring hf., en það selur íslenskt vatn í Bandaríkjunum, Tælandi og Kína. Fyrir átti Ölgerðin 40% í fyrirtækinu, en mun kaupa 3% af öðrum hluthöfum og eignast 8% með áskrift að nýju hlutafé sem félagið gefur út í tengslum við viðskiptin. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Greiðsla Ölgerðarinnar vegna viðskiptanna nemur samtals rúmlega 500 milljónum, eða um 3,7 milljónum Bandaríkjadala. Verður Iceland spring með viðskiptunum hluti af samstæðu félagsins í staðinn fyrir að vera hlutdeildarfélag.

Í tilkynningunni kemur fram að vatn frá Iceland spring fáist í yfir 35.000 verslunum úti í heimi og segist forstjóri Ölgerðarinnar sjá mikil vaxtartækifæri í útflutningi og framleiðslu. Meðal verslan sem vatnið er selt í eru 7-Eleven, Walgreens og Rite Aid.

33 milljónir flöskur á síðasta ári

Vatnsútflutningur Iceland Spring ehf. hefur tvöfaldast frá árinu 2020. Árið 2022 var það besta í rekstri félagsins þar sem velta var 2,5 milljarðar og rekstrarhagnaður félagsins um 250 milljónir króna. Vaxtaberandi skuldir Iceland Spring eru um 400 milljónir króna eftir hlutafjáraukningu auk um 350 milljóna króna kröfu- og birgðafjármögnunar í Bandaríkjunum.

Ölgerðin sér um átöppun og aðra umsýslu fyrir Iceland Spring en félagið á vatnslind skammt frá Hólmsheiði. Ölgerðin er í viðræðum við Reykjavíkurborg um framtíðar uppbyggingu á svæðinu. Á síðasta ári voru framleiddar 33 milljónir flaskna og er gert ráð fyrir söluaukningu á þessu ári.  Eftir viðskiptin eru hluthafar Iceland Spring Ölgerðin 51%, Pure Holdings 31%, Three Amigos 13%, Iceland Water með 4% og Houston Point 1%.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK