Egill nýr framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi

Egill Lúðvíksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi.
Egill Lúðvíksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi.

Egill Lúðvíksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi. Hann tekur við stöðunni af Gauta Reynissyni í sumar. Gauti hefur ákveðið að hverfa til annarra starfa eftir átta ár hjá fyrirtækinu.

Heimstaden er leigufélag í Evrópu með um 160 þúsund heimili í 10 löndum, sem metin eru á 4.600 milljarða króna. Heimstaden er skráð á Nasdaq First North Growth markaðinn.

Egill hefur starfað hjá móðurfélagi Heimstaden í Kaupmannahöfn síðustu fjögur ár við fjárfestingar, stefnumótun og fjármögnun á hinum ýmsu starfssvæðum fyrirtækisins. Egill átti stóran þátt í komu Heimstaden inn á íslenskan markað fyrir þremur árum og hefur starfað náið með skrifstofunni á Íslandi við fjármögnun og stýringu eignasafnsins hér.

Fráfarandi framkvæmdastjóri, Gauti Reynisson, hefur starfað hjá félaginu, sem áður hét Heimavellir, frá árinu 2015. Í kjölfar yfirtökunnar leiddi Gauti innleiðingu á rekstrarmódeli Heimstaden, með kjörorðin vinaleg heimili að leiðarljósi, í þjónustu félagsins hér á landi.

„Þessi átta ár sem ég hef starfað hjá Heimstaden á Íslandi hafa verið uppfull af spennandi tækifærum. Ég er sérstaklega þakklátur því góða fólki sem ég hef verið svo lánsamur að vinna með. Fyrirtækið er í góðum höndum og vel búið undir framtíðina,“ segir Gauti í tilkynningu. 

„Við erum þakklát Gauta fyrir hans góðu störf og óskum honum alls hins besta í því sem framundan er hjá honum. Þökk sé Gauta og hans fólki, þá mæla 92% leigjenda Heimstaden á Íslandi í dag með fyrirtækinu sem leigusala. Við hlökkum til að starfa með Agli, sem er öflugur stjórnandi með yfirgripsmikla þekkingu á starfsemi Heimstaden á Íslandi. Egill og framúrskarandi teymi starfsfólks Heimstaden á Íslandi munu halda áfram að bjóða viðskiptavinum sínum upp á vinaleg heimili og góða þjónustu,“ segir Helge Krogsbøl, framkvæmdastjóri hjá móðurfélaginu Heimstaden.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK