Sívaxandi áhugi á heilbrigðari lífsstíl hefur aukið vinsældir Icelandic Glacial-vatnsins bæði í Asíu og Norður-Ameríku.
Læknar í báðum heimsálfum hafa mælt með vatninu vegna hás pH-gildis og lágs steinefnahlutfalls.
Icelandic Glacial telst til hágæðavatns og hefur verið að klífa upp vinsældalistana á þeim markaði og er nú komið í tíunda sæti yfir hágæðavatnsvörumerki á bandarískum neytendamarkaði. Ef einungis er litið til innfluttra vörumerkja hafnar merkið enn ofar.
Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holdings sem á og rekur Icelandic Glacial Water, segir bandarískan markað standa undir 85 hundraðshlutum af veltu fyrirtækisins.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.