Skoða gjaldtöku á streymisveitur

Lilja D. Alfreðsdóttir segir starfshópnum ætlað að skoða til hvaða …
Lilja D. Alfreðsdóttir segir starfshópnum ætlað að skoða til hvaða aðgerða sé hægt að grípa með hliðsjón af skuldbindingum Íslands. Samsett mynd

Fjármála- og efnahagsráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra hyggjast setja á laggirnar starfshóp um gjaldtöku á erlendar streymisveitur.

Í tilkynningu menningar- og viðskiptaráðuneytis segir að mikil umræða hafi verið um framlag alþjóðlegra streymisveitna til þeirra landa þar sem þjónusta af þeim er keypt, svonefnt menningarframlag.

Skoða samkeppnisumhverfið

Þá segir að á sama tíma hafi OECD beitt sér fyrir samræmdri nálgun þegar kemur að gjaldtöku á stafrænu efni sem fer yfir landamæri. Þannig hafi innlendir fjölmiðlar því kallað eftir að samkeppnisumhverfi innlendra og erlendra fjölmiðlaveitna yrði tekið til skoðunar og þá sérstaklega með tilliti til skattaumhverfis þeirra.

Taka hliðsjón af skuldbindingum Íslands

„Við teljum ráðgert að setja af stað starfshóp með það hlutverk að skoða gjaldtöku á streymisveitur, þar með talið hið svokallaða menningarframlag. Starfshópnum er ætlað að skoða til hvaða aðgerða er hægt að grípa í þessum efnum með hliðsjón af skuldbindingum Íslands á þessu sviði, bæði lagalega og á vettvangi OECD.“ er haft eftir Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra.

Starfs­hóp­inn munu skipa þrír full­trú­ar ráðuneyta og verður honum ætlað að ljúka vinnu sinni eigi síðar en 1. júlí næstkomandi svo hægt verði að leggja fram frumvarp á haustþingi gerist þess þörf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK