Sigurjón Örn Þórsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Kringlunnar þann 1. júní nk. Sigurjón hefur gegnt starfinu í 17 ár.
Frá 1. júní nk. hyggst Sigurjón Örn taka við nýju starfi sem framkvæmdastjóri nýs þróunarfélags sem mynda á um þá uppbyggingu sem fyrirhuguð er á Kringlureitnum öllum sem afmarkast af Kringlumýrarbraut, Miklubraut, Kringlu og Listabraut.
Inga Rut Jónsdóttir mun svo taka við sem nýr framkvæmdastjóri Kringlunnar. Inga Rut hefur starfað hjá Reitum í 18 ár sem viðskiptastjóri með áherslu á leigusamninga í verslun, einkum í Kringlunni. Inga Rut hefur að auki setið í markaðsráði Kringlunnar undanfarin ár, að því er segir í tilkynningu.
Þá segir, að meginhlutverk nýs þróunarfélags Kringlureitsins sé að leiða áfram þróun svæðisins í samstarfi við alla hlutaðeigandi aðila og tryggja sem bestan og hraðastan framgang verkefnisins, skipulags- og framkvæmdalega og tryggja að þróun hverfisins verði í sem bestu samræmi við þá starfsemi sem þar er fyrir. Um sé að ræða þróun og uppbyggingu samfélags með blöndu af íbúðum, verslunum, þjónustu, menningu og listastarfsemi miðsvæðis í Reykjavík. Svæðið allt sé um 13 hektarar þar sem gert er ráð fyrir um 160 þús. nýjum fermetrum og fjöldi íbúða getur orðið um 1.000.
„Stjórn Rekstrarfélags Kringlunnar vill þakka Sigurjóni af heilhug fyrir frábært og óeigingjarnt framlag hans til Kringlunnar undanfarin ár. Sigurjón hefur verið í fararbroddi á þeirri vegferð að verja, viðhalda og byggja upp stöðu Kringlunnar sem fjölsóttasta og vinsælasta verslunarkjarna landsins sem og þróa Kringluna í takt við kröfur tímans, ekki síst hvað stafræna þróun varðar. Á þessari vegferð hefur verið glímt við ýmsar áskoranir eins og efnahagshrun og heimsfaraldur, verkefni sem Sigurjón og samstarfsfólk hans hafa tekist á við af einurð og festu,“ segir í tilkynningunni.