Forstjóri JPMorgan Chase, Jamie Dimon, vonast til þess að kaupin á First Republic bankanum af Tryggingasjóði innistæðueigenda í Bandaríkjunum, FDIC, muni lægja öldurnar á bankamarkaði.
„Vonandi mun þetta koma á stöðuglega,“ sagði Dimon við fjölmiðla áður en hlutabréfamarkaðir opnuðu í Bandaríkjunum í dag.
Eftirlitsaðilar í Bandaríkjunum lögðu í nótt hald á eignir á First Republic bankanum í Kaliforníu en bankinn var strax í kjölfarið keyptur af JPMorgan Chase.
„Engin kristalskúla er fullkomin, en já, ég tel að bankakerfið sé mjög stöðugt. Þessum hluta ástandsins er lokið,“ sagði Dimon.
Varaði hann þó við því þótt að aðstæður væru nú betri fyrir bankakerfið, að blikur væru enn á lofti á húsnæðismarkaði með hækkun stýrivaxta og samdrætti í efnahagskerfinu.
„En í bili ættum við að draga djúpt að okkur andann,“ sagði Dimon.