Airbus í notkun strax á næsta ári?

Airbus A321XLR vél í litum Icelandair.
Airbus A321XLR vél í litum Icelandair. mbl.is

Stjórnendur Icelandair eru að velta þeim möguleika fyrir sér að taka Airbus þotur í notkun strax á næsta ári.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, greinir frá þessu í samtali við Flugvarpið – hlaðvarp um flugmál. Icelandair tilkynnti sem kunnugt er að félagið hefði skrifað undir viljayfirlýsingu við flugvélaframleiðandann Airbus um kaup á 25 Airbus A321XLR-vélum sem ætlað er að taka við af Boeing 757-vélum félagsins.

Samhliða því var tilkynnt að stefnt væri að því að taka fyrstu fjórar vélarnar í rekstur árið 2025.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. mbl.is/Árni Sæberg

Strax næsta sumar

Í hlaðvarpsþættinum segir Bogi Nils að nú sé um það rætt innanhúss hjá félaginu hvort möguleiki sé á að taka eina til tvær Airbus-vélar í notkun strax næsta sumar, eða 2024.

Umræðurnar snúa helst að því að innleiðing strax geti hjálpað við innleiðingu fleiri slíkra véla sem blasir við árið 2025. Bogi Nils segir samt að þótt um þetta sé rætt, þá hafi enn sem komið er engar ákvarðanir verið teknar og þar að auki óvíst hvort vélar verði á lausu sem henti fyrir Icelandair.

Þá segir hann að samningagerðin við Airbus sé nú í fullum gangi og að hann hafi væntingar um að þeirri skjalagerð ætti að ljúka í júní næstkomandi. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér á mbl.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK