Viðar Guðjónsson
„Nú er spurningin hvort markaðurinn sé búinn að verðleggja þennan hallarekstur. En allt hefur sitt verð og þú færð um 0,5% meira fyrir áhættuna á skuldabréfum í Reykjavík, ef þú miðar við kjörin á skuldabréfum hjá Lánasjóði sveitarfélaga,“ segir Valdimar Ármann, forstöðumaður hjá Arctica Finance, um fyrirhugað skuldabréfaútboð borgarinnar á miðvikudag.
Vísar hann þar til þess að vextir á skuldabréfum Reykjavíkurborgar eru um 3,5% ef miðað er við viðskiptavakt á bréfunum en til samanburðar eru um 3% vextir á bréfum frá Lánasjóði sveitarfélaganna. Hann segir þó óvíst hvort kjörin verði í samræmi við þau vaxtakjör sem viðskiptavaktin segir til um. Það muni skýrast betur þegar að skuldafjárútboðinu kemur. „Og þá hvort markaðurinn sé sáttur við þessi ávöxtunarkjör eða hvort þau verði einhver önnur,“ segir Valdimar.
Útboðið er á miðvikudag en því hefur tvívegis verið frestað á árinu. Borgina vantar 14 milljarða til að markmið um 21 milljarðs fjármögnun á fyrri hluta árs gangi eftir. Að sögn Valdimars gæti það breytt stöðunni hvað fjárfesta varðar að nú liggur fyrir hver staðan er eftir að ársreikningur var kynntur.