Vilja ráðuneytisstarfsmann burt

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. Ómar Óskarsson

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) gerir athugasemd við að starfsmaður fjármála- og efnahagsráðuneytis eigi sæti í fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans í úttekt á íslenska fjármálakerfinu. Telur sjóðurinn að sjálfstæði nefndarinnar til ákvarðanatöku yrði betur tryggt færi starfsmaðurinn úr nefndinni.

Guðrún Þorleifsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu fjármálamarkaða í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, er ein þriggja utanaðkomandi sérfræðinga á sviði fjármálamarkaða sem sitja í fjármálaeftirlitsnefnd að skipan fjármálaráðherra, en fyrir utan sérfræðingana þrjá eiga varaseðlabankastjórar fjármálastöðugleika og fjármálaeftirlits fast sæti í nefndinni. Guðrún sótti um stöðu varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits en dró umsókn sína til baka. Skipað var í stöðuna í lok apríl.

Úttektin (e. Financial Sector Assessment Program, FSAP) gefur til kynna að bæta megi viðnámsþrótt fjármálakerfisins enn frekar með því að tryggja eftirlitsstofnunum næg völd, aðföng og sjálfstæði. Í skýrslu AGS kemur fram að með því að fjarlægja starfsmann ráðuneytisins úr nefndinni mætti betur tryggja sjálfstæði fjármálaeftirlitsnefndar til ákvarðanatöku og draga úr mögulegum hagsmunaárekstrum.

Hafa áður gert athugasemd

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur AGS áður viðrað áhyggjur sínar af setu ráðuneytisstarfsmanns í nefndinni í samskiptum við stjórnvöld, en hefur nú birt athugasemdina formlega í úttekt þessari.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK