Alvotech semur um markaðssetningu

Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.
Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech. Ljósmynd/Aðsend

Líftæknifyrirtækið Alvotech tilkynnti í dag um undirritun samnings við Polifarma um markaðssetningu í Tyrklandi á fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við líftæknilyfið Eylea® (aflibercept).

Tekjur af sölu frumlyfsins Eylea námu 9,6 milljörðum Bandaríkjadala á heimsvísu á síðasta ári eða sem samsvarar rúmum 1.300 milljörðum íslenskra króna. Líftæknilyfjahliðstæða Alvotech AVT06 er lyf í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.

Polifarma sér um skráningu og markaðssetningu

Aflibercept binst æðaþelsvaxtarþáttum og getur þannig hamlað bindingu og virkjun viðtaka þeirra, nýæðamyndun og æðagegndræpi. Klínískar rannsóknir á AVT06 standa nú yfir. Í júli á síðasta ári tilkynnti Alvotech að hafin væri rannsókn á sjúklingum til að bera saman klíníska virkni, öryggi og ónæmingarverkun AVT06 og Eylea í sjúklingum með aldurstengda vota augnbotnahrörnun (AMD).

Samkvæmt samningi Alvotech við Polifarma mun Alvotech sjá um þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðunnar en Polifarma um skráningu og markaðssetningu hennar í Tyrklandi.

Bæta aðgengi að hagstæðum líftæknilyfjum

Haft er eftir Róberti Wessman, stjórnarformanni og forstjóra Alvotech, í tilkynningu að það sé fyrirtækinu mikil ánægja að hefja samstarf við Polifarma um markaðssetningu á þessu fyrirhugaða lyfi við augnsjúkdónum. „Markmið okkar er að bæta aðgengi sjúklinga um allan heim að hagstæðum líftæknilyfjum. Þetta samstarf gerir okkur kleift að þjóna betur markaðnum í Tyrklandi, sem fer vaxandi.“

Þá er í tilkynningu haft eftir Mehmet Asri, forstjóra Polifarma, að með samningnum við Alvotech auki Polifarma úrval og framboð af lyfjum við augnsjúkdómum. „Við erum mjög spennt að geta boðið þessa fyrirhuguðu líftæknilyfjahliðstæðu í Tyrklandi.“

Þróa átta líftæknilyfjahliðstæður

Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Polifarma er leiðandi fyrirtæki í sölu á lyfjum til spítala í Tyrklandi. Það var stofnað fyrir 37 árum og er að öllu leyti í eigu tyrkneskra fjárfesta. Fyrirtækið er nú með markaðsleyfi fyrir um 600 lyf á 15 meðferðarsviðum. Fyrirtækið þjónar jafnframt 70 erlendum mörkuðum og hefur sett sér það markmið að verða leiðandi lyfjafyrirtæki á heimsvísu fyrir árið 2025 og að viðhalda forskoti á sviði tækni og gæðamála.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK